Ljósmyndararinn Jessica Auer fer í einskonar könnunarleiðangur um ferðamannastaði Íslands og skrásetur umhverfi ferðamannsins. Í myndum hennar verða ferðalangurinn og efnisheimur hans hluti af náttúrusvæðum og áningarstöðum.
Ferðamennska birtist sem umbreytingarafl í íslensku landslagi og hefur sterk sjónræn áhrif. Sjálf stendur Jessica utan við viðfangsefnið og horfir úr fjarlægð líkt og gestur í ókunnugum heimi. Breytt landslag af manna völdum hefur verið viðfangsefni samtímaljósmyndara um nokkurt skeið og ferðamannaiðnaðurinn er stór þáttur í því mengi.
Jessica er kanadísk og kennir ljósmyndun við Concordia University í Montréal. Hálft árið býr hún á Seyðisfirði og rekur þar stúdíóið Strönd.