Ljósmyndasafn Reykjavíkur
Augnablik af handhófi,
verk úr safneign
15.1.2022- 27.3.2022
Sýningin Augnablik af handahófi er byggð upp á sjónrænum þáttum sem er safnað saman úr safneign Ljósmyndasafnsins og textum sem fengnir eru úr prentuðum ritum. Þannig er sýningin tilbúningur þar sem sýningarstjórinn Yean Fee Quai stillir saman raunverulegum ljósmyndum og ótengdum bókmenntum.

Á síðustu 40 árum hefur Ljósmyndasafn Reykjavíkur safnað meira en sex og hálfri milljón ljósmynda. Í safneigninni eru myndir teknar af atvinnuljósmyndurum sem og áhugamönnum sem hafa náð að mynda það sem fyrir augu ber, atburði og uppákomur, fræga einstaklinga jafnt og alþýðufólk, venjur, hversdagsleg fyrirbæri og allt það sem hægt er að ná á mynd. Safnið fær ljósmyndir og filmur frá einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum, sem berast í kössum og skjalaskápum og hafa fyrir löngu fyllt takmarkað geymslurými þess.

Fyrstu tvo áratugi safnsins, fyrir tíma stafrænnar tækni, sáu safnverðir um hið krefjandi verkefni að flokka, skrá, rannsaka og varðveita þessi augnablik sem fest voru á filmu, sem var tímafrekt og seinlegt starf. Síðustu tvo áratugi, eftir að stafræn ljósmyndun tók við af filmuljósmyndun á örskömmum tíma, hefur stafræn tækni verið nýtt til að gera gögn safnsins aðgengileg á einfaldan hátt, með því að breyta ljósmyndum og filmum safnsins í myndrænt gagnasafn.

Á sýningunni Augnablik af handahófi er myndavefurinn sem er aðgengilegur á heimasíðu Ljósmyndasafnins notaður. Þegar myndir eru sóttar á myndavefinn með hjálp ákveðinna leitarorða, birtast ófyrirséðar samsetningar ljósmyndaðra augnablika. Hvert þeirra er er einstakur fjársjóður og þau tengjast í gegnum orð við myndaleit.

Öfugt við myndavefinn sem notast við algóritma, var leitað á gamla mátann að texta til notkunar með myndunum—brot úr textum úr útgefnu efni, sem ýmist kallast á við, eða renna saman við sjónrænu frásögnina. Hvort sem það eru myndirnar sem mynda samhljóm við textana, eða orðin sem vísa í myndirnar, kallar þessi meðvitaða tilraun fram samræmi eða ósamræmi þarna á milli.

*Skráningartexti: Um 1900, ungur karlmaður tekur mynd af sjálfum sér í spegli. Eggert Claessen. Sennilega með myndavél unnustu sinnar og síðar eiginkonu, Soffíu.